Halldór C Kárason

ID: 17809
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1914

Halldór Carl og Anna Kristjana Mynd VÍÆ II

Halldór Carl Kárason fæddist í Blaine, Washington 13. janúar, 1914.

Maki: Anna Kristjana Jónsdóttir f. í Vancouver, 22. júlí, 1914.

Börn: Þau eignuðust ekki börn en ættleiddu dreng, Paul Halldór.

Halldór var sonur Guðbjarts Kárasonar og Ingibjargar Erlendsdóttur í Blaine. Hann lauk grunnskólanámi í Blaine og fór í iðnskóla. Varð rakari. Í seinni heimstyrjöldinni var  hann meðal annars á Philippseyjum og Japan. Þegar heim kom innritaðist hann í Western Washington State College í Bellingham, lauk þaðan prófi og gerðist kennari. Foreldrar Önnu voru Jón Frímann Jónsson og kona hans, Ásrún Jónsdóttir frá Mýri í Bárðardal.