Halldór Jónsson

ID: 12929
Fæðingarár : 1830
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1902

Halldór Jónsson Mynd FLNÍ

Halldór Jónsson fæddist 7. nóvember, 1830 í N.  Múlasýslu. Dáinn í Winnipeg 27. október, 1902.

Maki: 1) Margrét Sigfúsdóttir 2) Jóhanna Einarsdóttir 3) Gróa Þorsteinsdóttir 4) Sigurbjörg Jónsdóttir f.27.maí, 1840 í N. Múlasýslu, d. 13. október, 1913.

Börn: Með Margréti 1. Þórunn f. 1855. Tveir synir dóu á barnsaldri. Með Sigurbjörgu: 1. Margrét Jóhanna f. 1867 2. Helga f. 1874 3. Rustikus f. 1876 4. Halldóra Petrína.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og námu land í Víðirnesbyggð í Nýja Íslandi. Fóru þaðan vorið 1880 til N. Dakota og bjuggu hjá Þórunni dóttur Halldórs sem þar bjó nálægt Grafton. Ekki festu þau sér land heldur bjuggu áfram hjá dætrum sínum í sveitunum í grennd við Grafton. Þau fluttu til Winnipeg árið 1889.