Halldór Jónsson fæddist í V. Skaftafellssýslu 1. mars, 1856. Dáinn í Cleveland í Utah 15. júní, 1924.
Maki: 1) 1879 Guðrún Jónsdóttir f. 4. júní, 1850 í Kjósarsýslu, d. 25. apríl, 1939 í Price í Utah. Þau skildu 2) 25. mars, 1885 Margrét Magnúsdóttir f. 20. nóvember, 1856 í Kjósarsýslu, d. 15. júní, 1924 í Cleveland. Þau skildu 3) 1913 Jónína Ásgrímsdóttir f. 25. febrúar, 1885 í Borgarfjarðarsýslu, d. 13. febrúar, 1967.
Börn: Með Guðrúnu 1. Jóhann f. 2. október, 1879 í V. Skaftafellssýslu, d. 17. maí, 1954 2. Margrét Catherine f. 12. ágúst,1882, d. 28. febrúar, 1957 3. Barney Andrew f. 12. ágúst, 1882, tvíburi 4. Halldór Jacob f. 26. janúar, 1883, d. 4. september, 1884 5. Dómhildur Sarah f. 20. október, 1886, d. 31. maí, 1888 6. Gróa f. 27. desember,1890, d. 16. september, 1924 7. Albert f. 18. nóvember, 1893, d. 27. mars, 1945. Með Jónínu 1. Svava 2. Laufey.
Halldór og Guðrún fluttu vestur til Utah árið 1881 með Jóhann litla og settust að í Spanish Fork. Eftir fáein ár fluttu þau í Emery sýslu skammt frá Cleveland og bjuggu þar. Halldór gerðist trúboði og fór tvær ferðir til Íslands. Þá fyrri árið 1899 til 1901 en hina síðari 1910 til 1913.
