ID: 12888
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Halldór Karvelsson fæddist 7. júlí, 1865 í S. Múlasýslu.
Maki: Margrét Stefanía Sigurðardóttir f. 4. desember, 1868 í Skagafjarðarsýslu.
Börn: 1. Leifur f. 25. júní, 1905 2. Anna Steinunn Sigrún f. 5. ágúst, 1907 3. Karvel Sigurður f. 21. september, 1908.
Halldór flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1891. Vann fyrstu árin hjá bændum í Nýja Íslandi og Argylebyggð. Annaðist fiskflutninga á veturna frá veiðistöðum við norðanvert Winnipegvatn til Selkirk og Winnipeg. Árið 1895 nam hann land í Víðirnesbyggð og nefndi Hjarðarhaga og bjó þar.
