Hallgerður R Jónsdóttir

ID: 16502
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1893

Hallgerður R Jónsdóttir Mynd VÍÆ I

Hallgerður Róslaug Jónsdóttir fæddist í Duluth í Minnesota 12. apríl, 1893.

Maki:  4. ágúst, 1945 Davíð Björnsson f. í Hafnarfirði 7. júlí, 1890. Dáinn í Winnipeg 30. september, 1981.

Barnlaus. Davíð átti börn með fyrri konu.

Hallgerður var dóttir Jóns Magnússonar og Þorgerðar Eysteinsdóttur í Duluth sem voru fyrst í Keewatin í Ontario. Seinna í Selkirk og Winnipeg. Hallgerður lauk miðskóla- og kennaraprófi. Kenndi í skólum í nokkrum byggðum landa sinna í Manitoba. Davíð var sonur Björns Hjálmarssonar og Guðrúnar Bjarnadóttur í Húnavatnssýslu. Hann var þar fyrstu æviár sín en er sendur vestur á firði og gekk í barnaskóla í Hnífsdal. Þaðan lá leið hans í Skagafjörð þar sem hann gekk í bændaskólann á Hólum og að námi loknu 1914 var hann ráðinn kennari við skólann. Hugur hans stefndi annað og flytur hann til Reykjavíkur þar sem hann lagði stund á trésmíðanám árið 1916. Flutti til Vesturheims árið 1924.