Hallgrímur Guttormsson

ID: 12873
Fæðingarár : 1868
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Hallgrímur Guttormsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1868.

Maki: Sigríður Nikulásdóttir f. 1877 í N. Múlasýslu.

Hallgrímur fór vestur með foreldrum sínum árið 1883 til Hallson í N. Dakota. Þar bjó fjölskyldan í tíu ár en fór þaðan til Roseau í Minnesota árið 1893. Voru þar til ársins 1903 en þá fluttu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan og tók Hallgrímur land nærri bænum Leslie. Þar gerðist hann verslunarmaður, rak járnvöruverslun.