Halli Björnsson

ID: 12857
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1935

Halli Björnsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1877. Dáinn í Nýja Íslandi árið 1935.

Maki: 1899 Guðrún Gísladóttir f. 1877 í Skagafjarðarsýsla, d. 1943.

Börn: 1. Gísli fæddist andvana 2. Halldór f. 1901 3. Björg f. 1902 4. Gísli f. 1904 5. Bjarni f. 1906 6. Magnúsína Guðrún (Sina) f. 1908 7. Jakob f. 1910, dó fljótlega eftir fæðingu 8. Björn f. 1911, d. 1930 9. Halli Gunnsteinn f. 14. nóvember, 1913 10. Pétur Steinn f. 1914 11. Jóhannes f. 1915 12. Thomas f. 1917 13. Dýrunn Ólína f. 1918 14. Victoria f. 1921.

Halli flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1889 með foreldrum sínum og systur. Þau fóru þaðan norður í Nýja Ísland og bjuggu þar alla tíð. Guðrún flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Gísla Árnasyni og Dýrunni Steinsdóttur og systkinum, árið 1883. Þau fluttu þaðan í Mikley í Nýja Íslandi.