Hallur Hallsson var fæddur í Skagafjarðarsýslu 11. apríl, 1837. Dáinn 1914 í Nýja Íslandi.
Maki: 1. Guðrún Bjarnadóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 1840, d. 1875. 2. Jórunn Helga Jóhannesdóttir
f. 1842, d. 1882. 3. Lilja Lárusdóttir f. 9. desember, 1862 í Skagafjarðarsýslu.
Börn: Með Guðrúnu: 1. Lilja f. 1862, d. 1936. 2. Bjarni f. 1864, d. 1864 3. Jónína Helga f. 1866 4. Sigríður f.1870, d. 1873 5. Sigvaldi f. 1873, d. 1873. Með Jórunni Helgu: 1. Jóhannes f. 1876, d.1953 2. Hallur f. 1878 3. Guðrún Sigríður f.1879, d. 1881 4. Jón f. 1881, d. 1882. Með Lilju: 1. Guðrún f. 1886. 2. Ólöf Jórunn f. 1893 3. Anna 4. Vilhjálmur 5. Oddný Lára.
Hallur og Lilja fluttu vestur 1883 og fóru til Nýja Íslands. Voru fyrsta veturinn í Fljótsbyggð en fluttu 1884 á land sitt í Breiðuvík í Hnausabyggð. Það hét Flugustaðir. Eftir 16 ár þar fluttu þau í Arnesbyggð og þar hét staður þeirra Björk. Hallur endaði lífshlaup sitt á Hóli í Fljótsbyggð.
