Hallur Hallsson

ID: 7428
Fæðingarár : 1837
Dánarár : 1913

Hallur Hallsson var fæddur í Skagafjarðarsýslu 11. apríl, 1837. Dáinn 9. febrúar, 1913 í Nýja Íslandi.

Maki: Lilja Lárusdóttir f. 9. desember, 1862 í Skagafjarðarsýslu, d. í Nýja Íslandi 16. febrúar 1937.

Börn: 1. Guðrún f. 1886. 2. Ólöf Jórunn f. 1893 3. Anna 4. Vilhjálmur 5. Oddný Lára.

Hallur og Lilja fluttu vestur 1883 og fóru til Nýja Íslands. Voru fyrsta veturinn í Fljótsbyggð en fluttu 1884 á land sitt í Breiðuvík í Hnausabyggð. Það hét Flugustaðir.  Eftir 16 ár þar fluttu þau í Arnesbyggð og þar hét staður þeirra Björk.  Hallur endaði lífshlaup sitt á Hóli í Fljótsbyggð.