Haraldur Þorláksson

ID: 9335
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1915

Standandi: Lovísa Björg, Gunnar, Páll, Pálína og Ásta. Haraldur og María sitja fyrir framan. Mynd PIP

Haraldur Þorláksson Mynd VÍÆ III

Haraldur Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1847. Dáinn í N. Dakota árið 1915.  Thorlakson vestra.

Maki: María Stefanía Sigurðardóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1847.

Börn: 1. Lovísa Björg f. 21. september, 1875 2. Páll 3. Pálína 4. Ásta 5. Gunnar. Þau eiguðust fimm önnur börn sem öll létust fyrir 1897.

Haraldur og María fluttu vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1872. Bjuggu þar nokkur ár en settust svo að í Shawanobyggð. Þar voru þau til ársins 1879 en þá settust þau að í N. Dakota. Þar námu þau land í dæld neðan við hæð þar sem þorpið Mountain stendur í dag. Hét byggðin sem þar myndaðist Víkurbyggð.