
Helga Jónsdóttir Mynd VÍÆ IV
Helga Jónsdóttir fæddist 11. desember, 1892 í N. Múlasýslu. Dáin í Winnipeg árið 1973.
Maki: 12. apríl, 1923 í Siglunesbyggð Eysteinn Árnason fæddist í N. Múlasýslu 29. maí, 1896. Dáinn í Riverton 3. júní, 1943
Börn: 1. Katrín (Kay) f. 7. janúar, 1927 2. Jón Eysteinn f. 17. júlí, 1931.
Helga var dóttir Jóns Jónssonar frá Sleðbrjót og Guðrúnar Jónsdóttur sem vestur fluttu yil Manitoba árið 1903. Eysteinn flutti til Vesturheims árið 1902 með móður sinni, ekkjunni, Katrínu Hildibrandsdóttur og systkinum. Þau fóru í Framnesbyggð í Manitoba þar sem systir Katrínar, Guðrún, og hennar fjölskylda bjó. Þar var Eysteinn þar til 1906, tíu ára gamall fór hann til Sigurðar, bróður síns, sem sestur var að í Winnipeg, nýkvæntur. Þar óx hann úr grasi, kláraði barna- og unglingaskóla og skömmu síðar hófst kennaraferill hans. Hann kvæntist Helgu og fluttu þau til Oak Bluff við Manitobavatn þar sem Eysteinn kenndi til ársins 1931. Það ár réðst hann sem skólastjóri til Riverton.
