Herdís Kristjánsdóttir

ID: 8958
Fæðingarár : 1896
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1971

Herdís Kristjánsdóttir Mynd VÍÆ I

Herdís Kristjánsdóttir fæddist 26. nóvember, 1896 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin á Betel á Gimli 15. maí, 1971.

Maki: 12. janúar, 1920 Ingvi Sveinn Sveinsson f. í Svold í N. Dakota 28. ágúst, 1892, d. í Framnesbyggð 16. maí, 1971. Ingvi S Erickson vestra.

Börn: 1. Emily Herdís f. 26. nóvember, 1921 2. Ingvi Sveinar f. 17. apríl, 1923 3. Esther Valdheiður f. 17. september, 1924 4. Helga f. 7. maí, 1929.

Herdís var dóttir Kristjáns Ingjaldssonar og Kristjönu Árnadóttur á Hallgilsstöðum í S. Þingeyjarsýslu. Móður sína missti hún barnung og var tekin í fóstur af móðurbróður sínum, Guðjóni og konu hans Ragnheiði Davíðsdóttur. Flutti vestur til Manitoba með Ragnheiði árið 1909 og fór með henni í Nýja Ísland. Flutti til Winnipeg 2 árum síðar og stundaði þar nám í verslunarskóla. Þar kynntist hún Ingva. Ingvi var sonur Sveins Eiríkssonar ólst upp í Hallsonbyggð í N. Dakota og lauk þar grunnskólanámi. Fór til Winnipeg og stundaði þar nám við verslunarskóla. Herdís og Ingvi bjuggu í Arborg þar sem Herdís tók mikinn þátt í félagsmálum landa sinna.