ID: 19935
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1912
Fæðingarstaður : Manitoba

Hermann Jóhannes Fjelsted Mynd VÍÆ IV
Hermann Jóhannes Fjeldsted fæddist í Arborg í Manitoba 2. maí, 1912.
Maki: 5. september, 1953 Guðlaug Jónína Björnsdóttir f. í Framnesbyggð.
Börn: Jo-Ann Kathryn f. 2. júní, 1957.
Hermann var sonur Ásgeirs Þorbergssonar Fjeldsted í Arborg, Manitoba og Ingunnar Guðfinnu Kristjónsdóttur úr Hnausabyggð. Hann gekk í skóla í Arborg, fékk vinnu hjá Sigurdson-Thorvaldson Co. í Hnausabyggð þar sem hann vann til ársins 1943. Gekk það ár í kanadíska herinn og var skipaður birgðastjóri. Flutti nýkvæntur til Winnipeg og bjó þar.
