Hermann Jónsson

ID: 9363
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1965

Hermann Jónsson og Guðrún Snorradóttir Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri.

Hermann Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1888. Dáinn í Vancouver árið 1965.

Maki: 1911 Guðrún Snorradóttir f. í Winnipeg 24. desember, 1886, d. í Vancouver 12. október, 1971.

Börn: 1. Hallfríður Guðrún 2. Jón Hermann 3. Jóhann Baldur 4. Sigríður Nanna 5. Halli. Fósturdóttir Kristjana Indriðadóttir Skordal.

Hermann fór vestur með föður sínum og systkinum árið 1903. Fylgdi honum fyrstu árin en nam seinna land í Vatnabyggð í Saskatchewan. Guðrún var dóttir Snorra Jónssonar Reykjalín og Guðrúnar Davíðsdóttur sem vestur fluttu árið 1883. Jóhann Gottfred Þorgeirsson og kona hans, Hallfríður Jónsdóttir tóku Guðrúnu í fóstur.