Hildur Árnadóttir

ID: 12986
Fæðingarár : 1889

Hildur Árnadóttir Mynd VÍÆ IV

Hildur Árnadóttir fæddist í N. Múlasýslu 17. maí, 1889.

Maki: 1965 Sigurbjörn Eggertsson f. 11. september, 1895 í Eyjafjarðarsýslu. Hún var seinni kona hans.

Barnlaus.

Hildur flutti vestur til Manitoba árið 1902 með móður sinni, Katrínu Hildibrandsdóttur. Hildur gekk í skóla í Winnipeg, lauk kennaraprófi og kenndi í barnaskólum frá 1911 þangað til hún hætti árið 1953.  Flutti það ár til Vancouver.