Hlaðgerður Jónasdóttir

ID: 9660
Fæðingarár : 1883

Hlaðgerður Jónasdóttir Mynd VÍÆ I

Hlaðgerður Jónasdóttir fæddist í S – Þingeyjarsýslu 29. janúar, 1883. Skrifaði sig Kristjánsson vestra.

Ógift og barnlaus.

Hlaðgerður fór vestur til N. Dakota árið 1893, með foreldrum sínum, Jónasi Kristjánssyni og Guðrúnu Þorsteinsdóttur. Hún bjó í Pembina árin 1893-1901, flutti þá norður til Winnipeg.  Gekk í skóla í borginni og fór í framhaldsnám í Chicago árið 1912. Þar stundaði hún nám við listaskólann The Art Institute og lauk þar prófi 1914. Hún kenndi teikningu og listmálun um skeið en lagði svo fyrir sig fatasaum. Var alla tíð virkur þátttakandi í félagsmálum landa sinna í Winnipeg.