Ingibjörg Bjarnadóttir

ID: 13009
Fæðingarár : 1838
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Ingibjörg Bjarnadóttir fæddist í N. Múlasýslu árið 1838.

Maki: Eyjólfur Þórðarson f. í N. Múlasýslu árið 1835.

Börn: 1. Sigurður f. 1854 2. Hallgrímur f. 1872, d. í ágúst, 1910 á Íslandi.

Ingibjörg flutti vestur með syni sínum, Hallgrími, konu hans, Guðlaugu og börnum þeirra árið 1904. Þau fóru til Winnipeg í Manitoba þar sem Hallgrímur veiktist af berklum og sigldi heim til Íslands. Ingibjörg og börnin tvö urðu eftir í Winnipeg. Sigurður sonur hennar flutti vestur þangað árið 1888.