Ingibjörg Guðmundsdóttir

ID: 12955
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1938

Ingibjörg Guðmundsdóttir fæddist 26. október, 1844 í S. Múlasýslu. Dáin í N. Dakota 11. mars, 1938.

Maki:  1884 Friðrik Jóhannesson f. 23. maí, 1832 í S. Þingeyjarsýslu, d. 30. júlí, 1913 í Manitoba.

Börn: 1. Guðný Margrét f. 16. nóvember, 1884 2. Guðrún Guðfinna f. 4. október, 1888. Ingibjörg átti fyrir soninn Guðna Hansson f. 27. janúar, 1875. Hann skrifaði sig Gudni Goodman og bjó í Seattle.

Ingibjörg flutti vestur til Kanada árið 1878 og þaðan suður til N. Dakota. Friðrik og fyrri kona hans, Solveig Benediktsdóttir fóru vestur til Ontario í Kanada árið 1874. Fluttu til Lockport í Nova Scotia og bjuggu þar til ársins 1880 en fóru þá vestur til Winnipeg í Manitoba. Þar skildu þau.  Friðrik fór þá suður í Garðarbyggð í N. Dakota og seinna í Sandhæðabyggð.