
Ingibjörg Margrét Vilhjálmsdóttir Mynd VÍÆ I
Ingibjörg Margrét Vilhjálmsdóttir fæddist 1. febrúar, 1896 í Mikley í Manitoba. Dáin 22. október, 1975 í Selkirk. Ingibjörg Jónsson vestra.
Maki: 29. júlí, 1938 Einar Páll Jónsson f. í N. Múlasýslu 11. ágúst, 1880, d. í Winnipeg 27. maí, 1959.
Barnlaus.
Ingibjörg var dóttir Vilhjálms Sigurgeirssonar og Kristínar Þóru Helgadóttur landnema í Mikley. Einar Páll ólst up í sveit á Austurlandi, fór í framhaldsnám í Menntaskólanum í Reykjavík árið 1902 -1905. Vann hjá bæjarfógetanum í Reykjavík 1905-1913, fór það ár til Winnipeg í Manitoba og bjó þar alla tíð. Ingibjörg var á 12. ári þegar móðir hennar dó og helgaði sig heimilisstörfum með föður sínum. Samt tókst henni að öðlast menntun. Meir um hana í Íslensk arfleifð að neðan.
