
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir Mynd SÍND
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir fæddist 23. apríl, 1861 í Snæfellsnessýslu. Dáin 24. október, 1960.
Maki: 7. nóvember, 1889 Grímur Þórðarson f. 16. júní, 1854 í Mýrasýslu, d. 23. apríl, 1911 í N. Dakota. Thordarson vestra.
Börn: 1. Solveig Sigríður f. 1. desember, 1890 2. Þórður Valdimar f. 2. nóvember, 1892 3. Guðrún f. 15. október, 1894 4. Olavia Ruth f. 2. desember, 1895 5. Þyrí (Thyri) 6. júlí, 1898 6. Dorothy f. 31. desember, 1899 7. Júlía May f. 3. maí, 1901.
Grímur flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin ásamt foreldrum sínum og systkinum. Þar lést faðir hans, Þórður Árnason tveimur mánuðum eftir komu þeirra þangað. Móðir Gríms, Guðrún Grímsdóttir fór þá í vist hjá norskum bónda í Danesýslu nærri Madison í Wisconsin. Þar voru þau til ársins 1876 en þá fóru þau í íslensku byggðina í Shawano sýslu þar sem þau voru til ársin 1880. Þá fluttu þau í Garðarbyggð í N. Dakota. Ingibjörg flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1883.
