Ingvar H Stefánsson

ID: 12137
Fæðingarár : 1901
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1953

Ingvar Haukur Stefánsson Mynd VÍÆ III

Ásta Jósefsdóttir Mynd VÍÆ III

Ingvar Haukur Stefánsson fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 3. júní, 1901. Dáinn á Íslandi 28. mars, 1953.

Maki: 9. september, 1931 Ásta Jósefsdóttir f. 13. maí, 1902 í Borgarfjarðarsýslu.

Börn: 1. Anna Kristín f. í Borgarfirði 9. janúar, 1933 2. Gunnlaugur Stefán f. 20. júní, 1934 á Akureyri 3. Ólafur Snorri Jóhannes f. 1. júlí, 1936 4. Ólafur Snorri Jóhannes f. á Akureyri 1. júlí, 1936 5. Ástríður Guðrún f. á Akureyri 24. maí, 1940.

Ingvar fór vestur til Kanada árið 1903 með móður sinni, Önnu Sigríði Guðmundsdóttur og systur hennar Jónu. Þau dvöldu í Winnipeg til ársins 1908, fluttu þau þá með manni Önnu, Sigbirni Sigbjörnssyni til Vatnabyggða í Saskatchewan. Ingar nam við Winnipeg School of Arts árin 1922-1925 og hélt áfram námi í Chicago í 3 ár. Hann flutti alfarinn heim til Íslands árið 1932 og bjó eftir það á Akureyri. Vann við húsamálun fyrst um sinn en helgaði sig svo listum. Hann mynskreytti kirkjurnar að Munkaþverá, Möðruvöllum í Eyjafirði og Mælifelli í Skagafirði. Ásta var hjúkrunarkona og vann við það í Skotlandi, Winnipeg, Los Angeles og New York. Flutti heim til Íslands árið 1932.