Ísak Jónsson

ID: 20507
Fæðingarár : 1953
Dánarár : 1927

 

Ísak Jónsson Mynd A Century Unfolds

 Ísak Jónsson fæddist 3. desember,  1853 í Mýrasýslu. Dáinn í Nýja Íslandi 8. ágúst, 1927.

Maki: Ingibjörg Benediktsdóttir f. 1858 í Eyjafjarðarsýslu, d 17. september, 1913 í Manitoba. Johnson vestra. Þau giftust ekki.

Börn: 1. Elísabet Elínborg f. 29.ágúst, 1886. Dáin 20.janúar, 1969. 2. Aðalsteinn Sigurjón (Steini Johnson) f. 28.október, 1898. Dáinn 21. apríl, 1987.

Ingibjörg átti Elísabetu á Íslandi með Steini Jónssyni. Önnur dóttir þeirra, Steinunn f. 1888 dó á Íslandi 1894. Aðalsteinn var sonur Ísaks.

Ísak fór vestur með móður sinni, Sigurlaugu Eiríksdóttur og manni hennar, Þórði Magnússyni árið 1878 og settust að í N.Dakota. Árið 1901 fluttu þau norður í Nýja Íslandi og tóku land í Framnesbyggð.