Ísak Jónsson

ID: 12352
Fæðingarár : 1866
Dánarár : 1949

 Ísak Jónsson fæddist 29. mars, 1866 í N. Múlasýslu. Dáinn í Seattle 13. október, 1949. Johnson vestra

Maki: 14. ágúst, 1904 Jakobína Sigurbjörnsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu 17. október, 1883.

Börn: 1. Kári f. 17. ágúst, 1905 2. Ingólfur f. 4. ágúst, 1907 3. Konráð Ari f. 22. október, 1910 4. María Guðrún f. 3. júlí, 1913, d. 31. júlí, 1942 5. Haraldur Björn f. 18. júlí, 1911 6. Jóhann Ísak f. 24. nóvember 7. Stephan Jón.

Ísaklærði trésmíði á Íslandi og í Danmörku, Hann flutti vestur árið 1892 og fór til Winnipeg. Þar vann hann við húsbyggingar til ársins 1904 en það ár fluttu þau hjón vestur að Kyrrahafi. Jakobína flutti vestur 1889 með foreldrum sínum, Sigurbirni Jóhannssyni og Maríu Jónsdóttur. Þau settust að í Argylebyggð þar sem Jakobína ólst upp. Hún var 16 ára þegar hún flutti til Winnipeg þar sem hún lauk kennaraprófi árið 1904.