Jakobína Jónsdóttir

ID: 4045
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1961

Jakobína Jónsdóttir fæddist í Dalasýslu 25. nóvember, 1872. Dáin í Blaine í Washington 30. ágúst, 1961.

Maki: Þorleifur Jónsson f. 1854 í Húnavatnssýslu, d. á Point Roberts árið 1946. Johnson vestra.

Börn:  1. Jón 2. Gísli 3. Sigvaldi 4. Baldur 5. Sigríður 6. Sigrún 7. María 8. Evelyn Frances.

Jakobína fór vestur til Kanada árið 1876 með móður sinni, Solveigu Jónsdóttur og hálfsystur sinni Sigríði Helgadóttur. Fósturfaðir Jakobínu Jón Gíslason beið þeirra í Ontario og þaðan fór fjölskyldan til Nýja Íslands í Manitoba. Eftir nokkur ár fluttu þau á land nærri Mountain í N. Dakota. Þorleifur fór vestur til N. Dakota frá Íslandi eftir 1890 þar sem þau gengu í hjónaband. Fluttu vestur á Point Roberts í Washington árið 1895 og námu þar land. Jakobína flutti til Blaine skömmu eftir andlát Þorleifs.