Jens Jónsson

ID: 4232
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1905

Jens Jónsson og Anna Sigurrós og börn þeirra Mynd DM

Jens Jónsson fæddist í Dalasýslu árið 1859. Dáinn í Winnipeg 25. maí, 1905. Thorgeirsson vestra.

Maki: Anna Sigurrós Jónsdóttir f. 1869 í Dalasýslu, d. í Bradenbury í Saskatchewan 8. maí, 1935.

Börn: 1. Jón 2. Skarphéðinn lést 30. júlí, 1913 3. Jón Þorgeir 4. Guðmundur Leó 5. Ástráður Vilhelm 6. Soffía Hlíf 7. Halldór Kristinn 8. Victor Edward. Jón átti fyrir hjónaband  dóttur, Þuríður Anikka f. 23. ágúst, 1881.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Bjuggu þar fyrsti tvö árin en fluttu þaðan í Þingvallabyggð í Saskatchewan og námu land. Þau fluttu aftur til Winnipeg eftir tvö ár og þaðan í Grunnavatnsbyggð. Þar undu þau í tæp fjögur ár  en sakir veikinda Önnu fluttu þau aftur til Winnipeg.  Að manni sínum látnum seldi Anna hús þeirra í Winnipeg og flutti með fimm börn sín í Þingvallabyggð og bjó þar.