Jódís Jónsdóttir

ID: 19277
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1892
Fæðingarstaður : Svold
Dánarár : 1982

Jódís Jónsdóttir fæddist í Svold í N. Dakota, 8. janúar, 1892. Dáin á Betel á Gimli 22. mars, 1982. Disa Brandson vestra.

Maki: 4. júlí, 1918 Sigurður Brandsson f. 6. mars, 1885 í Snæfellsnessýslu. Dáinn 2. september, 1975 í Arborg.

Börn: 1. Guðlaug Kristín (Christine) f. 20. maí, 1911  2. Sigrún Þóra 3. Margrét 4. María 5. Jónína 6. Matthías 7. Óskar (Oscar) 8. Þórður (Thor) 9. Freeman 10. Halldóra (Haddie). Stúlka, Helga f. 1935 dó í fæðingu.

Jódís var dóttir Jón Björnssonar og Sólrúnar Jónsdóttur úr Rangárvallasýslu sem vestur fluttu árið 1886 og settust að í Svold í N. Dakota. Þau fluttu í Árdalsbyggðina árið 1901. Sigurður flutti vestur til Manitoba árið 1899 með móður sinni, Þórunni Þórðardóttur og systrum sínum, Solveigu og Sigríði. Gunnlaugur Ólafsson hét maður Sigríðar og þeirra sonur, 3 ára var Þórður Ólafur. Gunnlaugur nam fljótlega land í Árdalsbyggð en Þórunn, Sigurður og Solveig bjuggu fyrst í Selkirk. Þórunn nam svo land nálægt Sigríði og Gunnlaugi. Árið 1906 nam Sigurður land í byggðinni, hóf búskap og keypti svo árið 1911 landið af móður sinni. Sigurður og Jódís lifðu vel og lengi í byggðinni.