Jóel Sigurbjörnsson

ID: 10784
Fæðingarár : 1886

Jóel Sigurbjörnsson fæddist á Vopnafirði í N.-Múlasýslu 12. apríl, 1886.

Maki: 1) 1909 Þóra Rósa Sigurðardóttir f. í Húnavatnssýslu 30. desember, 1874, d. 10. maí, 1956. Laxdal vestra. 2) 1957 Lillian Rossor.

Börn: Með Þóru 1. Marínó f. 12. maí, 1909 2. Sigurbjörn f. 12. apríl, 1911 3. Sigmundur f. 3. maí, 1914.

Jóel var sonur Sigurbjörns Sigurðssonar og Oktavíu Jónsdóttur og flutti með þeim vestur árið 1894. Hann bjó með þeim í N. Dakota en árið 1907 flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann bjó skammt frá Mozart. Síðustu ár sín var hann í Gladstone í Manitoba. Þóra fór vestur árið 1888, með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Maríu Guðmundsdóttur, landnema í Garðarbyggð í N. Dakota.