Jóhann Pálsson

ID: 8122
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1904

Jóhann Pálsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1872. Dáinn í Manitoba árið 1904.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1902 og fór til Morden. Þar ákvað hann að fara með kunningjum sínum í skoðunarferð til Vatnabyggða í Saskatchewan með það fyrir augum að nema þar land. Þetta voru þeir Jónas Tómasson og Jón Egill og Axel Guðni Ágústssynir. Þeir sömdu við Jón Laxdal vorið 1904 um að tryggja þeim öllum fjórum land vestur af Mozart og gerði hann það. Aldrei komst Jóhann á land sitt, hann lést í árslok.