Jóhann T Friðriksson

ID: 9788
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1935

Fremst á myndinni er Valgerður í hestakerru og hjá henni situr ein dætra hennar. Ef grannt er skoðað sést Jóhann standa við kerruna með hatt. Mynd RQ

Jóhann Tryggvi Friðriksson fæddist 1856 í S. Þingeyjarsýslu.

Maki: Jónína Valgerður Björnsdóttir f. 1863 í N. Þingeyjarsýslu

Börn: 1. Sigrún 2. Karl 3. Björg 4. Ethel 5. Björn 6. Oddný Guðfinna 7. Kristján

Jóhann fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 með föður sínum og yngri bróður. Þeir bjuggu fyrst í Ontario, fluttu þaðan til Lockport í Nova Scotia en þaðan lá svo leiðin til Winnipeg í Manitoba. Jóhann nam land í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1882 en flutti þaðan og nam land í Argylebyggð árið 1884 og bjó þar til ársins 1906. Þá fluttu þau í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem hann nam land og keypti annað í Kandahar/Dafoe byggð. Bjó þar í ellefu ár en þá seldi hann og fluttu þau hjón í Wynyard.