Jóhannes Davíðsson

ID: 8900
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1938

Jóhannes Davíðsson Mynd VÍÆ II

Jóhannes Davíðsson fæddist árið 1870 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Vatnabyggð árið 1938.

Maki: 1898 Jónína Daníelsdóttir f. 1881 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: Með þeim vestur árið 1913 fór 11 ára frænka Jóhannesar. Sú hét Steinunn Ingibjörg Guðmundsdóttir f. 16. mars, 1902 í Eyjafjarðarsýslu. Bjó hún hjá þeim til fullorðinsára.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1900, þar sem þau bjuggu í fimm ár. Fluttu þá í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land nærri Foam Lake þar sem þau bjuggu í sjö ár til ársins 1912. Þá fluttu þau heim til Íslands en leist ekki á og fóru aftur til Vatnabyggða í Saskarchewan ári síðar. Nú bjuggu þau í þorpinu Leslie næstu þrjú árin, keyptu svo land þar nærri.