ID: 11752
Fæðingarár : 1811
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1891
Jóhannes Oddsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1811. Dáinn í N. Dakota árið 1891.
Hann flutti vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1876, samferða dætrum sínum, Guðfinnu og Oddnýju, þeirra mökum og börnum. Hann var í Nýja Íslandi fyrstu árin en flutti þaðan suður til N. Dakota um 1880 og bjó í Thingvallabyggð.
