Jón Árnason

ID: 19030
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1889

Jón Árnason fæddist 15. maí, 1889 í Lincolnbyggð í Minnesota. Alltaf John Sigvaldason vestra.

Maki: Emily Jónsdóttir Landy f. 20. maí, 1895 í Argylebyggð.

Bðrn: 1. Grace Emily 2. Jón Elwyn 3. Bernice Eileen

Jón var sonur Árna Sigvaldasonar og konu hans Guðrúnu Aradóttur landnema í Loncolnbyggð í Minnesota. Þar ólst Jón upp, gekk menntaveginn og kenndi eitt ár í Minnesota áður en hann flutti til Glenboro árið 1917. Emily var dóttir Jóns Jónassonar frá Axarfirði og Sigríðar Magnúsdóttur úr Borgarfirði, landnema í Argylebyggð. Jón keypti land austur af Glenboro og lagði fyrir sig búskap. Þau fluttu til Longmont í Colorado í Bandaríkjunum þar sem Frank, bróðir Jóns rak umfangsmikla olíuverslun.