
Jón Arngrímsson Mynd Well Connected
Jón Arngrímsson fæddist í Duluth í Minnesota 31. júlí, 1883. Dáinn í Mozart í Saskatchewan 2. september, 1946.
Maki: 30. júní, 1910 Sigríður Magnúsdóttir f. í Garðar í N. Dakota 10. febrúar, 1889.
Börn: 1. Jón Magnús f. 25. ágúst, 1911 2. Björn Stefán f. 28. júlí, 1915 3. Valgerður Þorbjörg f. 10. júní, 1917 4. Karl Allan f. 13. febrúar, 1920 5. Norman Sigurður f. 29. nóvember, 1926.
Foreldrar Jóns, Arngrímur Arngrímsson og Þorbjörg Magnúsdóttir fluttu vestur til Duluth í Minnesota árið 1882 og þaðan í Garðarbyggð í N. Dakota 1885. Faðir Sigríðar, Magnús Magnússon fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með móður sinni, Elínu Magnúsdóttur og stjúpföður, Ólafi Jónassyni. Þau settust að í Nýjas Íslandi og fóru þaðan suður í Garðarbyggð árið 1881. Jón flutti í Vatnabyggð árið 1905 og bjó þar alla tíð.
