ID: 9633
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1944

Jón Guðmundsson Mynd Almanak 1941
Jón Guðmundsson: Fæddur á Nesi í Aðaldal í S.Þingeyjarsýslu árið 1848. Goodman vestra. Dáinn 1944 í Manitoba.
Maki: Guðrún Eiríksdóttir f. í Hróarstungu í N. Múlasýslu árið 1855, 12. júní, 1934.
Börn: 1. Þórarinn 2. Kristbjörg 3. Helga Sigríður dó í æsku 4. Guðbjörg f. 1883, d. 12. október, 1935. Stjúpdóttir Jóns var Þóra Guðný.
Jón fór vestur um haf árið 1874 til Kinmount í Ontario. Fór þaðan með fyrsta hópnum til Nýja Íslands 1875. Jón vann eitt og annað í nýlendunni fyrst um sinn, fór síðan til Winnipeg í nokkur ár en tók land í Argylebyggð árið 1882. Guðrún fór vestur með móður sinni, Helgu Arngrímsdóttur árið 1878.
