Jón Halldórsson

ID: 5777
Fæðingarár : 1874
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1958

Jón Halldórsson fæddist 19. ágúst, 1874 í Húnavatnssýslu. Dáinn 20. maí, 1958 í Manitoba

Maki: 1. október, 1905 Guðlaug Guðmundsdóttir f. 10. febrúar, 1889 í S. Múlasýslu.

Börn: 1. Halldór Guðmundur f. 12. desember, 1906 2. Sigurjón Norman f. 27. desember, 1907 3. Ólafía Arnbjörg f. 8. október, 1909 4. Guðlaug Thelma f. 19. júlí, 1911 5. Sigríður Lilja f. 9. júní, 1913 6. Oscar Marino f. 1. júlí, 1918, d. 1935. 7. Emil Valdimar f. 1. júlí, 1918, d. í barnæsku 8. Emily Thelma f. 8. apríl, 1920 9. Guðrún Grace f. 15. október, 1923 10. Margaret Pearl f. 25. júlí, 1927.

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1891 og þaðan til Pembina í N. Dakota þar sem foreldrar hans og systkini bjuggu.  Árið 1896 fluttu þau öll þaðan norður á Bluff skaga vestan við Manitobavatn. Þau fóru þaðan í Narrows og bjuggu á Red Deer Island í fjögur ár. Þaðan  lá leiðin suður í Big Point byggð árið 1902. Jón fór þaðan árið 1909 og settist að í Westbourne þar sem hann var í tvö ár. Næst lá leiðin til Lundar þar sem hann bjó lengstum. Seinna flutti þau hjón til Winnipeg.