Jón J Eiríksson

ID: 18860
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1881
Dánarár : 1942

Jón J Eiríksson Mynd ACU

Hildur Jónína Sigfúsdóttir Mynd ACU

Jón James Eiríksson fæddist 26. september, 1881 í Minneota í Minnesota. Dáinn í Arborg árið 1942. Jon James Johnson vestra.

Maki: 1) Hildur Jónína Sigfúsdóttir f. 1882 í Winnipeg, d. 1914 í Arborg. 2) Sigurlína Ingibjörg Baldvinsdóttir f. 19. mars, 1898 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: Með Hildi 1. Stefán f. 24. júlí, 1910 2. Sigrún Jóhanna f. 20. júlí, 1912. Með Sigurlínu 1. Harold Niels f. 26. maí, 1925 2. Hildur Jónína f. 29. ágúst, 1929.

Jón ólst upp hjá foreldrum sínum Eiríki Jónssyni og Vilborgu Stefánsdóttur í Minneota í Minnesota. Þaðan lá svo leið fjölskyldunnar til Duluth og seinna í Akrabyggð í N. Dakota en 1901 flutti fjölskyldan til Kanada og nam land nærri Arborg í Manitoba. Þar gerðist Jón bóndi og bjó þar síðan. Hildur Jónína var dóttir Sigfúsar Jónssonar og Guðrúnar Hildibrandsdóttur sem vestur fluttu til Manitoba árið 1876. Sigurlína var dóttir Baldvins Jónssonar og Ingibjargar Pálsdóttur, sem fluttu vestur úr Skagafirði árið 1900.