ID: 12267
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1932

Börn Jóns og Önnu; Sveinn (Swain), Páll (Paul), Sigga, Björgvin, Helga og Haraldur (Harold) Mynd RbQ
Jón Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 29. september, 1856. Westdal vestra. Dáinn á Betel í Nýja Íslandi árið 1932
Maki: Anna Kristrún Gunnlaugsdóttir f. 12. júní, 1849 í N. Múlasýslu, d. 6. maí, 1910.
Börn: 1. Einar f. 1881, d. 1911 2. Kristjana f.26. janúar, 1883 3. Björgvin f. 1884, d. 1940 4. Páll f. 1887 5. Sigga 6. Helga 7. Haraldur. Með þeim vestur fór Grímur Guðjónsson, tökubarn.
Þau fluttu vestur árið 1904 til Winnipeg í Manitoba og fóru strax vestur á bóginn. Þau stigu á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan í vetrarbyrjun sama ár. Það var í svonefndri Wynyardbyggð.
