ID: 3549
Fæðingarár : 1840
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1908
Jón Jónsson fæddist í Dalasýslu 27. apríl, 1840. Dáinn í Manitoba 7. janúar, 1908.
Maki: Þorbjörg Guðmundsdóttir f. 15. október, 1844 í Dalasýslu, d. 26. október, 1923.
Börn: 1. Jóhann f. 1874 2. Björg f. 1877 3. Guðjón f. 1879 4. Guðmundur f. 1881 5. Katrín f. 1884 6. Ólafur Valdimar f. 18. desember, 1897.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1885 og fóru til Nýja Íslands. Þar settust þau að í Mikley og bjuggu þar í 11 ár. Flóð í Winnipegvatni neyddu þau burt og fóru þau í Selkirk þar sem þau voru í tvö ár. Þaðan lá svo leið þeirra í Lundarbyggð.
