Jón Jónsson Hörgdal

ID: 8162
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Jón Jónsson Hörgdal, Kristrún Hallgrímsdóttir og börn. Mynd SÍND

Jón Jónsson fæddist 8. nóvember, 1854 í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu. Hörgdal vestra.

Maki: 19. júní, 1880 Kristrún Hallgrímsdóttir f. 1861 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: 1. Alfred 2. John Wilhelm 3. Hólmfríður María 4. Emilía 5. Hallgrímur 6. Jón 7. Árni 8. Valdemar 9. Elínborg 10. Guðbjörg Sigrún.

Jón fór vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settist að í Nýja Íslandi. Samskipa var Kristrún með foreldrum sínum. Jón vann í Winnipeg árið 1878 og þar hitti hann af tilviljun Jóhann Pétur Hallsson sem var þá á leiðinni úr Nýja Íslandi suður í N. Dakota. Jón slóst í för og var þá móðir hans, Karitas Árnadóttir komin vestur. Saman námu þau land í byggð þeirri sem seinna varð Hallsonbyggð árið 1879. Jón endaði árið 1918 í Vatnabyggð í Saskatchewan og bjó í Elfros.

 

 

Íslensk arfleifð :