Jón Jónsson

ID: 9340
Fæðingarár : 1834
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1909

Jón Jónsson og Sigurbjörg Stefánsdóttir  Mynd SÍND

Jón Jónsson fæddist 1834 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í N. Dakota 1909.

Maki: 1858 Sigurbjörg Stefánsdóttir f. 1824, d. 1904.

Börn: 1. Helga Sigríður f. 3. júlí, 1859 2. Jón f. 1. nóvember, 1861

Þau fluttu vestur til Ameríku árið 1873 og fóru strax til Milwaukee í Wisconsin. Þau fluttu vestur á land til Stoughton þar sem þau bjuggu í eitt ár. Vann Jón þá norskum bændum. Þau fluttu í íslesnku nýlenduna í Shawanosýslu í Wisconsin haustið 1874 og bjuggu þar til ársins 1880. Fluttu þá vestur í Garðarbyggð í N. Dakota þar sem þau bjuggu alla tíð. Jón sonur þeirra tók yfir land þeirra árið 1886 og sá um búskapinn. Þau voru tengdaforeldrar Stephans G. Stephanssonar, skálds.