Jón Jónsson

ID: 9360
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1851
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1935

Kristjana Helga Jónsdóttir Mynd VÍÆ V

Jón Jónsson fæddist 14. september, 1851 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Saskatchewan 4. júní, 1935.

Maki: Kristjana Helga Jónsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 9. nóvember, 1858. Dáin 12. apríl, 1900.

Börn: 1. Aðalbjörg f. 1880 fór ekki vestur 2. Guðný f. 1881 fór 1905 3. Áslaug f. 1883 4. Hallgrímur f. 1885 fór 1900 5. Baldur f. 1887 6. Hermann f. 1888 7. Haraldur 1892 8. Ásrún f. 1893 9. Sigríður 1896 fór 1900 10. Nanna f. 1897 11. Helgi f. 1899.

Jón flutti vestur ekill árið 1903 með sjö börn sín. Hallgrímur hafði farið vestur með Sigríði, systur sína árið 1900. Jón var fyrsta veturinn í Winnipeg í Manitoba. Nam síðan land í Sandilandsbyggð 1904 en flutti þaðan ári seinna á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan. Það var í Kandahar/Dafoe byggð.

Þessi mynd var tekin vestra 21. október, 1903. Þarna var Jón nýkominn vestur með 7 börn sín, Hallgrímur og Sigríður fóru til Winnipeg árið 1900. Aftast standa Áslaug, Hallgrímur og Baldur. Miðröð skipa Hermann, Sigríður, Helgi, Jón frá Mýri, Nanna og Ásrún. Fremstur er Haraldur. Mynd í eigu afkomenda Kristjönu Jónsdóttur frá Mýri

Íslensk arfleifð :