ID: 14735
Fæðingarár : 1884
Jón Ragnar Gíslason fæddist í S. Múlasýslu 9. febrúar, 1884. Johnson vestra.
Maki: 25. október, 1917 Margrét Ögmundsdóttir f. í Reykjavík 29. október, 1890.
Börn: 1. Guðlaug f. 11. september, 1918 2. Sólrún f. 7. nóvember, 1919 3. Ágúst Sigurður f. 17. janúar, 1921.
Jón flutti til Vesturheims árið 1903 með foreldrum sínum, Gísla Jónssyni og Sólrúnu Árnadóttur. Þau fóru til Manitoba og settust að í Gladstone í Manitoba. Þaðan lá leiðin norður í Siglunesbyggð en eftir tvö ár þar námu þau land í Wapah árið 1907. Jón var þar með griparækt á tveimur jörðum og stundaði fiskveiðar á veturna. Hann annaðist póstþjónustu í byggðinni og póstflutninga í 30 ár.
