ID: 8361
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Jón Sigurðsson: Fæddur í Strandasýslu árið 1854.
Maki: 1883 Sigríður Helgadóttir f. á Kristnesi í Eyjafjarðarsýslu árið 1862, d. 2. nóvember, 1934.
Börn: 1. Olga 2. Emma 3. Þóra 4. Ottó 5. Victor Arthur 6. Sigrún.
Fóru vestur árið 1883 og fóru til Nýja Íslands. Voru þar í eitt ár en fluttu næst til Selkirk þar sem Jón stundaði verslunarstörf. Þau settust að í Hólabyggð árið 1890 og voru á landi sínu í fimm ár. Fluttu til Glenboro árið 1895 og stuttu síðar 1897 til Winnipeg. Bjuggu þar síðan og vann Jón við smíðar.
