Jón Sigvaldason

ID: 11805
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1904

Jón Sigvaldason fæddist í N. Múlasýslu 3. nóvember, 1854. Dáinn í Minnesota 9. ágúst, 1904.

Maki: 1) Úlfheiður Sveinsdóttir f. 1849 í N. Múlasýslu, d. 1883. 2) 5. nóvember, 1887 Lára Eðvarðsdóttir.

Börn: Með Úlfheiði 1. Hólmfríður f. ca1880 2. Þóra Jónína f. ca1883, d. 1903. Með Láru 1. Sigríður Ágústa f. 18. ágúst, 1888 2. Lárus Valdimar f. 18. nóvember, 1890 3. Drengur f. 2. júlí, 1892 4. John Maríus 27. nóvember, 1896 5. Björg Ólympía f. 29. janúar, 1898.

Jón flutti vestur með bróður sínum Símoni Páli árið 1876. Þeir fóru til Winnipeg í Manitoba og þar var Jón til ársins 1881 en þá  flutti hann til Lyon sýslu í Minnesota. Þar var hann til ársins 1889, flutti þá til Duluth en aldamótaárið flutti hann aftur í Lyonbyggð. Lára giftist seinna Miles Fuller og fluttu þau til Halifax í Nova Scotia. Yngstu börn hennar, þau John og Björg fóru með þeim.