Jón Stefánsson

ID: 7393
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1939

Jón Stefánsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 5. júní, 1861. Dáinn í Manitoba 5. september, 1939.

Maki: 1883 Sæunn Jónsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 1. júní, 1862, d. 30. janúar, 1951.

Börn: 1. Ingigerður Magnea f. 24. júlí, 1884, d. 14. október, 1930 2. Anna Valgerður 3. Pálmi f. 3. febrúar, 1892 4.Jón Alec 5. Stefán 6. Elín 7. Jónína Jórunn 8. Valdína Sigrún f. 21. mars, 1910.

Jón og Sæunn fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og gengu þar í hjónaband. Þau fóru til Nýja Íslands sama ár og nam Jón land vestur af Gimli. Þau bjuggu þar til ársins 1912 en fluttu þá fyrstir Íslendinga á Elm Point í  norðanverðu Manitobavatni. Þar bjuggu þau til ársins 1936 þegar þau létu af búskap og fluttu í þorpið Steep Rock.