Jónas Jónsson fæddist í Húnavatnssýslu 24. janúar, 1865. Dáinn í Minneapolis í Minnesota 8. nóvember, 1930. John Svindal eða Swindal vestra.
Maki: Sigríður Jónsdóttir f. í S. Múlasýslu 25. maí, 1867.
Börn: 1. Jón f. 1888 2. Ólafur f. 25. ágúst, 1891 3. Snjólaug f. 1892 4. Sigríður f. 7. júlí, 1893 í Minnesota 5. Petra f. 26. nóvember, 1896 6. Jóhann Kristján f. 7. október, 1899 7. William Magnús f. 21. mars, 1901 8. Karl f, 1902, d. 28. nóvember,1902 9. Gunnar Karl f. 3. september, 1904, d. 13. júní, 1910.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fóru þaðan suður til Minnesota. Þau bjuggu fyrst í bænum Marshall en seinna nærri Minneota í Lyon sýslu. Byggði svo hús í Minneota þar sem fjölskyldan bjó til ársins 1910 en þá voru þau sest að í Watertown í S. Dakota og árið 1920 í Aberdeen, SD. Fjölskyldan flutti svo til Minneapolis árið 1925.
