Jónas Sigfússon

ID: 8106
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Jónas Sigfússon fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1877.

Ókvæntur og barnlaus.

Jónas flutti vestur árið 1882 með foreldrum sínum, Sigfúsi Jónassyni Bergmann og Þórunni Jónsdóttur og systkinum. Þau fóru til Manitoba. Jónas nam land í Brownbyggð árið 1899. Mágur hans, Árni Hallgrímsson hafði flutt vestur að hafi með systur Jónasar árið 1895 þar sem þau voru í tvö ár. Þegar þau sneru aftur til Manitoba þá bauð Jónas þeim að setjast að á landi hans og gerðu þau það. Jónas vann á landinu á sumrin en bjó í Garðarþorpi í N. Dakota á veturna. Hann seldi svo Árna landið og bjó í Garðar það sem eftir var.