ID: 8197
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Jónas Tómasson fæddist 1884 í Eyjafjarðarsýslu.
Maki: 21. mars, 1912 Rannveig Stefanía Árnadóttir f. N. Múlasýslu 1881
Börn: 1. Árni Kristján f. 1. september, 1912 2. Ragnar f. 13. september, 1915 3. Þórdís Sigurbjörg f. 11. mars, 1918 4. Guðrún Sigurrós f. 9. ágúst, 1920.
Jónas fór vestur til N. Dakota með foreldrum sínum og systkinum árið 1888. Hann ólst upp í Garðarbyggð en flutti þaðan með foreldrum sínum í Brown byggðina í Manitoba. Þaðan lá leið hans í Vatnabyggð í Saskatchewan vorið 1904. Hann nam land nærri Mozart. Rannveig fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Árna Sigurðssyni og Kristjönu S. Stefánsdóttur árið 1892. Þau námu land í Vatnabyggð í Saskatchewan.
