
Aftari röð: Ágústa, Ingunn, Jakob, Gróa. Fremri röð: Jónatan,Þorsteinn, Ingibjörg situr með Helgu og Stefanía. Mynd um 1896 í Our 1-6.
Jónatan Jónatansson fæddist í Húnavatnssýslu 8. maí, 1848. Dáinn í Thornhill í Manitoba 11. nóvember, 1935. Líndal vestra.
Maki: Ingibjörg Soffía Benediktsdóttir f. 29. nóvember, 1856, d. í Manitoba 28. apríl, 1936.
Börn: 1. Kristín Ingunn f. 6. september, 1882 2. Jakob f. 3. september, 1883 3. Gróa Helga f. 27. desember, 1884 4. Ágúst Benedikt f. 1887 5. Ágústa Björg f. 1. nóvember, 1888 í Garðar, ND 6. Þorsteinn Benedikt f. 19. desember, 1890 8. Stefanía Guðrún f. 2. maí, 1892 9. Helga f. 10. mars, 1899, d. 17. janúar, 1909. Þrjú börn þeirra dóu ung: 1. Björg d. á Íslandi 2. Elís Henry f. 1884, d. sama ár 3. Jósef Júlíus f. 26. desember, 1895, d. sama ár. Jónatan átti fyrir hjónaband 1. Jósep f. 1869 2. Vilhelmína f. 1872.
Jónatan og Ingibjörg fluttu vestur með fjögur elstu börn sín og Jósep og Vilhelmínu árið 1887. Fóru fyrst til Winnipeg í Manitoba en þaðan fljótlega á land sitt í Garðarbyggð. Þau fluttu þaðan í Brownbyggð í Manitoba árið 1899 og námu land. Þar komu þau að margvíslegum framfaramálum, gáfu t.d. land undir skólabyggingu og var skólinn nefndur Líndalskóli þeim til heiðurs og seinna var skólahéraðið sömuleiðis nefnt þeim til heiðurs og kallaðist Lindal District.
