Jónína Björnsdóttir

ID: 12798
Fæðingarár : 1889
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1973

Jónína Björnsdóttir fæddist 13. júlí, 1889 í N. Múlasýslu. Dáin 3. mars, 1973.

Maki: 1) 21. júní, 1907 Friðrik Hjálmarsson f. 9. október, 1874 í Barðastrandarsýslu, d. á Gimli árið 1946. Reykjalín vestra. 2) Jóhann Pétur Hallsson f. 1. mars, 1889.

Börn: 1. Hjálmar Friðrik f. 22. júlí, 1910 2. Elísabet Ingibjörg f. 11. nóvember, 1911 3. Soffía Valgerður f. 23. desember, 1914 4. Matthías John f. 20. september, 1920 5. Friðrik (Frederick) f. 23. nóvember, 1924.

Friðrik flutti vestur árið 1886 með foreldrum sínum, Hjalmari Friðrikssyni og Mette Pálsdóttur. Jónína fór vestur 1903, með móður sinni, Elísabetu Arnbjarnardóttur, hennar manni og þeirra börnum.  Friðrik og Jónína bjuggu fyrst nærri Hallson í N. Dakota, fluttu þaðan árið 1910 til Pine Creek í Minnesota. Fluttu svo vestur að Kyrrahafi árið 1913 og bjuggu þar eitthvað en sneru aftur þaðan og bjuggu í Manitoba.